Ótrúleg upplifun! Mögnuð skemmtun og mikill fróðleikur!
Myndbandsupptökur Erlendar Bogasonar úr lífríki sjávarins við Ísland kalla á sterk viðbrögð áhorfenda.
Myndböndin, tuttugu talsins, voru frumsýnd á Fiskideginum á Dalvík 2014.
Hér eru svipmyndir og smásögur úr sjónum; um ástir þorska, vináttu Stefaníu steinbíts og Erlendar kafara, um varnarsamstarf ýsuseiðis og marglyttu og margt margt fleira.
Erlendur naut stuðnings Rannsóknarsjóðs síldarútvegsins og Vinnslustöðvarinnar í Vestmannaeyjum við verkefnið og ókeypis kynningu þess á Dalvík og gagnvart almenningi hér Strýtuvefnum. Hann hefur fengið stuðning til að halda áfram verki sínu við að mynda lífríki hafsins og segja sögur úr sjónum.
Myndböndin
-
- Varnir Dýranna
– ótrúlegur heimur hafsins; svipmyndir úr nokkrum af myndböndundum tuttugu. - Þorskurinn frá hrygningu
– lífverur sjávarins verjast óvinum sínum með eiturgöddum eða einfaldlega með því að renna saman við umhverfi sitt. - Þaraskógarnir
– heimsókn á „fæðingardeild” í Þistilfirði þar sem þorskur hrygnir. - Svamparnir
– í hitabeltislöndum eru litríkur frumskógur. Í sjónum við Ísland er litríkur þaraskógur. - Sumar og vetur
– frumstæðar lífverur, litríkar og ólíkar að lögun. - Steinbíturinn Stefanía
– mikill munur er á umhverfinu neðansjávar eftir árstíðum rétt eins og á landi. - Sænetla
– sagan um einstakt vináttusamband Erlendar kafara og Stefaníu steinbíts. Eiginlega er þetta ástarævintýri! - Ríki krabbanna
– sæfíflar eru litfagrir en bregðast hart við áreiti. Kafarinn varð að vara sig … - Rauðmaginn á Hrognakletti
– hér segir af sérkennilegu sambýli og heimilishaldi hjóna, rauðmaga og grásleppu. - Óvenjulegir vinir
– ýsuseiði nota brennimarglyttur til að skýla sér fyrir óvinum í sjónum. Þetta vinasamband kemur sannarlega á óvart. - Krókar, net og náttúran
– krókur í þorskkjafti og grásleppa flækt í netaafgang. - Kóngar í sjónum
– veröld beitukóngsins er kóngsríki á hafsbotni. - Hvernig virkar net?
– getur þorskur lært að varast net í sjónum? Kannski. Við höfum alla vega vísbendingu um að þorskar séu engir þorskhausar … - Fiskarnir vinir mínir
– er unnt að gera fiska í sjónum hænda að sér? Já! Sjáið bara þegar þeir éta úr lófa Erlendar kafara. - Fiskar í vörn
– hluti lífsbaráttunnar í sjónum er að kunna að verjast, sýna tennur eða skipta litum. - Elsta dýr jarðar
– elsta lifandi dýr jarðar fannst við Ísland – kúfskel sem „fæddist“ við Grímsey áður en Svartidauði geysaði á Íslandi. - Eitruð Fegurð
– bertálknar eru flagð undir fögru skinni, fagrir á að líta en eitraðir. Menn skyldu ekki klappa þeim berhentir og því síður bragða á þeim. - Byrjun lífs á jörðu
– heitar lindir á hafsbotni, strýtusvæðið í Eyjafirði. - Ástir þorska í Þistilfirði
– þorskar í gríðarstórum torfum og einstæð upptaka af hrygningaratferli þorsks í náttúrulegu umhverfi. - Arnarnesstrýturnar
– stórfengleg náttúrusmíð á botni Eyjafjarðar, myndast þar sem heitt vatn streymir upp úr hafsbotni og hittir fyrir kaldan sjóinn.
- Varnir Dýranna